Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við varúðarsjónarmið, að afli rækju í Arnarfirði fiskveiðiárið 2023/2024 verði ekki meira en 166 tonn og að afli rækju í Ísafjarðardjúpi verði 0 tonn.
Stofnvísitala rækju í Arnarfirði lækkaði árið 2023 og var svipuð og á árunum 2018-2021.
Mikið var af ýsu á svæðinu en árin 2020-2023 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá árinu 2011.
Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi mældist mjög lág. Vísitölur ýsu hafa verið háar frá árinu 2004 og frá árinu 2020 hafa þær verið mjög háar í sögulegu samhengi.
Útbreiðslusvæði ýsu hefur stækkað og haustið 2023 fannst ýsa inn eftir öllu Ísafjarðardjúpi.