Vísindaport Háskólaseturs á Þingeyri

Blábankinn á Þingeyri

Í tilefni af fundi Rannsóknasamfélags Vestfjarða á Þingeyri verður vikulega Vísindaport Háskólaseturs haldið á Þingeyri í fyrsta sinn á morgun kl. 12:10.

Vísindaport er vettvangur til að miðla áhugaverðum fyrirlestrum til almennings og þar sem Rannsóknasamfélag Vestfjarða stendur fyrir árlegum viðburði sínum á Þingeyri var því kjörinn tími til að sameina þetta tvennt. 

Rannsóknafélagið er opinn hópur fólks sem stundar rannsóknir á Vestfjörðum og í nærumhverfi.

Á opna fyrirlestrinum sem Blábankinn stendur fyrir munu félagsmenn segja frá nýjustu verkefnum sínum í stuttum kynningum, þannig að áhorfendur fá að kynnast fjölbreyttum nýlegum rannsóknum á Vestfjörðum.

Starfsmenn frá Háskólasetri Vestfjarða, Nátturustofu Vestfjarða, Fræðasetri HÍ í Bolungarvík eru meðal þeirra sem munu kynna rannsóknir á fuglum, fornleifafræði, þorski, staðfestu í sjávarbyggðum og margt fleira! 

DEILA