Stofnfundur ADHD Vestfirðir á fimmtudag

Fræðslu/stofnfundur á Ísafirði, fimmtudaginn 9. nóvember kl. 20:00-22:00 í sal Vesturafl, Suðurgötu 9, Ísafirði.

Á þessum stofn- og fræðslufundi fer Vilhjálmur Hjálmarsson formaður samtakanna yfir hin ýmsu verkefni sem ADHD samtökin sinna sem og útibú þeirra. Farið verður yfir hinar ýmsu hliðar ADHD, eins og ADHD lyf, lyf og aðrar meðferðir.


Þessi stofnfundur er tileinkaður íbúum Vestfjarða og nágrennis í þeim tilgangi að virkja grasrótina til að auka aðgengi að fræðslu og stuðning fyrir alla sem þurfa á að halda.

Fundurinn er haldinn kl.20:00-22:00 í húsnæði Vesturafls, Suðurgötu 9, Ísafirði.

DEILA