Landsbjörg: sala neyðarkallsins hófst í gær

Í gær, fimmtudag, hleypti forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson og forsetafrúin Eliza Reid, sölu Neyðarkalls Björgunarsveitanna af stað með formlegum hætti.

Forsetinn og Eliza Reid tóku við stóru Neyðarkalli við færanlega stjórnstöð björgunarsveita á SV horninu, við Perluna.

Neyðarkall 2023 er aðgerðastjórnandi og aðgerðastjórnandinn Karen Lárusdóttir, sem einnig er glettilega lík Neyðarkalli 2023, útskýrði hlutverk aðgerðastjórnanda fyrir forsetanum og sýndi honum inn í stjórnstöðina og hvernig aðgerðir eru skipulagðar og stýrt.

Neyðarkall björgunarsveitanna er ein af stóru fjáröflunum björgunarsveitanna og fram á sunnudag má búast við björgunarsveitafólki annað hvort knýja dyra eða bjóða Neyðarkall til sölu við verslunarmiðstöðvar til að mynda.

Það er von Landsbjargar að landsmenn taki nú sem endranær vel á móti sjálfboðaliðum og sjái sér fært að styrkja björgunarsveitir landsins.

DEILA