Ísafjarðarbær: skólar lokaðir í dag

Vega kvennaverkfallsins verður þjónusta Ísafjarðarbæjar töluvert skert í dag.

  • Allir skólar, leikskólar og dægradvöl verða lokuð í dag, þriðjudag. 
  • Dagdeild á Hlíf verður lokuð.
  • Sundlaug og íþróttahús á Flateyri verða lokuð.

Ekki verður litið á fjarvistir vegna þátttöku í skipulagðri dagskrá sem óréttmætar né verður dregið af launum vegna þeirra segir í tilkynningu á vef Ísafjarðarbæjar. Hluti af þjónustu og starfsemi sveitarfélagsins er þó með þeim hætti að ekki er með nokkru móti hægt að leggja hana alfarið niður, til að tryggja að velferð, öryggi og heilsu fólks sé ekki stefnt í hættu.

DEILA