Starfshópur skipaður vegna fjárhagsstöðu bænda

Ríkisstjórnin samþykkti á föstudag að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra þriggja ráðuneyta; matvælaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og innviðaráðuneytisins.

Hópurinn mun leggja mat á þá stöðu sem upp er komin í landbúnaði í kjölfar endurtekinna hækkana á stýrivöxtum og verðhækkana á aðföngum.

Höfuðstóll verðtryggðra lána hefur hækkað hratt síðustu misseri og þannig rýrt eiginfjárstöðu bænda eins og víðar í samfélaginu. Staða landbúnaðar er þó sérlega erfið að því leyti að rekstur búa er nátengdur heimilum bænda og hækkanir við fjármagnskostnað og aðfangaverð hafa haft íþyngjandi áhrif. Rekstur í landbúnaði er því orðinn þungur hjá mörgum framleiðendum.

Starfshópurinn mun draga saman nýjustu gögn um stöðuna og þróun síðustu missera.
Í framhaldinu verða lagðar fram tillögur með hliðsjón af þessum gögnum og jafnframt leiða leitað til að auðvelda kynslóðaskipti og nýliðun í landbúnaði.

Hópurinn mun verða í samráði við Byggðastofnun og önnur fjármálafyrirtæki auk hagsmunaaðila í landbúnaði.

DEILA