Umhverfisstofnun tekur þátt í alþjóðlegu ERASMUS+ verkefni sem kallast Grey4Green.
Verkefnið hófst í ársbyrjun 2023.
Grey4Green snýst um að þróa sjálfboðaliðaverkefni í náttúruvernd meðal fólks sem er eldra en 60 ára.
Markmiðið er að efla þennan aldurshóp til virkrar þátttöku í umhverfismálum og stuðla í leiðinni að félagslegum og persónulegum vexti.
Verkefnið er að fara af stað á Íslandi og fyrsti liðurinn er að kanna áhuga fólks og fá hugmyndir að verkefnum. Það er gert með því að fara inn á heimasíðu Umhverfisstofnunar.