Háskóli Íslands: könnun um verndarsvæði í sjó

Háskóli Íslands hefur hleypt af stokkunum könnun meðal almennings um afstöðu til verndarsvæða í sjó. Könnunin er liður í því að kortleggja þessi viðhorf og þekkingu hagaðila til svæðisbundinnar stýringar og verndar hafsvæða. Spurningakönnunin fjallar að miklu leyti um gildandi reglugerðir innan fiskveiðistjórnunarkerfisins og tengingu þeirra við vernd og stýringu líffræðilegra auðlinda. Könnunin er opin öllum sem láta sig hafið og nýtingu þess varða.

Með því að smella á hlekkinn má svara könnuninni.

Í kynningu á könnuninni á vef Háskóla Íslands segir að verndarsvæðin þurfa ekki að vera lokuð fyrir allri nýtingu en stýring þeirra þurfi að hafa ótvíræðan ávinning fyrir vernd eða endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni. Þannig er hægt að kanna gildi annarra verndar- eða stjórnunaraðgerða t.d. svæðisbundinna aðgerða við fiskveiðistjórnun. Ísland hefur meðal annara þjóða samþykkt þessa stefnu sem samþykkt var á fimmtándu ráðstefnu aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni í desember 2022. Íslensk stjórnvöld eru að kanna mögulegar útfærslur. Reynslan sýnir að virk þátttaka hagaðila bætir útfærslu verndar- og stjórnunaraðgerða og eykur sátt. Hagsmunir ólíkra nýtingaraðila fara þó ekki alltaf vel saman, hvort sem nýtingin er til atvinnustarfsemi eða tómstunda. Það er því nauðsynlegt að skoða afstöðu fjölbreyttra hópa hagaðila í málefnum hafsins.

Óskað er eftir þátttöku í spurningakönnun

Allir eru hvattir til að taka þátt í þessari könnun og koma sjónarmiðum sínum á framfæri óháð hlutverki þeirra innan sjávarútvegs, nýtingu sjávar eða vernd hafsvæða. Könnunin er nafnlaus og geta umsjónarmenn hennar ekki tengt einstaklinga við svör. Það er ósk aðstandanda þessarar könnunar að hún verði liður í því að bæta þessa vinnu á Íslandi og hlutlaus vettvangur fyrir fjölbreytta hagaðila til að koma viðhorfum sínum á framfæri. Niðurstöður könnunarinnar verða gerðar aðgengilegar öllum þegar úrvinnslu er lokið.

Ábyrgðarmaður er Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum (tölvupóstur: gaol@hi.is, sími: 898 9037). Aðrir þátttakendur í verkefninu eru frá Háskólasetri Vestfjarða og Hafrannsóknastofnun.

DEILA