Opið hús í Tónlistarskóla Ísafjarðar

Hið árlega opna hús Tónlistarskóla Ísafjarðar verður laugardaginn 14. október og hefst með stuttum tónleikum Salóme Katrínar klukkan 13.30 í Hömrum.

Eftir það gefst gestum tækifæri á að ganga um húsið, fylgjast með æfingum/kennslu, skoða sýningu sem sett var upp í tilefni 75 ára afmælis skólans og sýningu um Húsmæðraskólann Ósk.

Klukkan 15 hefst dagskrá í Hömrum. Þar flytur hljómsveit kennara skólans nokkur lög sem tengjast stofnári skólans: 1948. Hátíðakórinn syngur nokkur lög undir stjórn Beötu Joó.

Allir velkomnir í Tónlistarskólann á laugardag kl. 13:30 – aðgangur ókeypis.

Veglegar kaffiveitingar verða í boði Kvennakórs Ísafjarðar.

DEILA