Gott að eldast: Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka þátt í þróunarverkefnum

Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög munu taka þátt í þróunarverkefnum sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýstu eftir slíku samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir. Áhugi fyrir þátttöku var mikill og hvorki fleiri né færri en 19 umsóknir bárust.

Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni sem nefnist Gott að eldast en með henni taka stjórnvöld utan um þjónustu við eldra fólk með nýjum hætti. Markmið þróunarverkefnanna er að finna góðar lausnir á samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta vandlega saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin.

Valnefnd hefur nú farið yfir umsóknirnar og sex svæði verið valin til þátttöku. Þau eru:

  • Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) og sveitarfélögin Fjarðabyggð og Múlaþing
  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og annars vegar sveitarfélagið Árborg og hins vegar Hveragerðisbær
  • Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og annars vegar Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (tíu sveitarfélög) og hins vegar sveitarfélagið Húnaþing vestra
  • Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis (HH) og sveitarfélagið Mosfellsbær
  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST) og sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupsstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð
  • Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og sveitarfélagið Dalvíkurbyggð

Í valnefndinni sátu þrír aðilar úr verkefnastjórn Gott að eldast, auk þess sem hvort ráðuneyti átti þar fulltrúa.

Allar aðgerðir miða að því að tryggja eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst og á þeirra eigin forsendum.

DEILA