Gilsfjörður: Ekki tókst að koma háhyrningum á flot

Ekki reyndist hægt að koma háhyrning sem lokast hefur innan brúar í Gilsfirði út fyrir brúna á flóði í kvöld.

Búið var að koma undir hann segli og festa við það belgi sem lyftu honum upp í sjónum. Teyma þurfti hvalinn talsvert langa leið að brúnni, og sæta færis á háflóði til að koma honum undir brúna.

Búnaðurinn virkaði vel, hvalurinn flaut hátt í sjó, og ágætlega gekk að færa hann til í sjónum.

Því miður kom upp vélarbilun í sjóþotu og einnig léttum gúmbát sem draga átti hvalinn undir brúna.

Þegar ljóst var að sá gluggi sem í boði var á háflóði myndi ekki nýtast, var ákveðið að hætta aðgerðum í kvöld, með velferð dýrsins í huga. Staðan verður metin á ný þegar birtir.

DEILA