Gilsfjörður: bjástrað við strandaðan hval

Félagsmenn í Landsbjörgu hafa í dag unnið að undirbúningi að björgun ungs háhyrnings sem er strandaglópur innan Gilsfjarðarbrúar á lokametrunum.

Komið hefur verið segli undir dýrið og flotbelgir festir við það báðum megin við dýrið.

Á flóði í kvöld verður svo gerð tilraun til að fleyta dýrinu út fjörðinn, undir brúna og á auðan sjó.

Myndir: Landsbjörg.

DEILA