Bæta á umferðaröryggi við skólann á Suðureyri

Bláa svæðið sýnir fyrirhugaða vistgötu og gulu örvarnar sýna stefnu akandi umferðar.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur lagt til við bæjarstjórn að samþykkja að gera hluta Túngötu á Suðureyri að vistgötu, nánar til tekið frá gatnamótum Túngötu og Sætúns að Túngötu 6.

Einnig verður sett upp einstefna til að mynda nokkurs konar hringakstur við skólann. Þannig er akstur og aðkoma akandi að skólanum einfaldaður. Er þetta gert til að tryggja sem best öryggi barna á svæðinu í kringum Grunnskólann á Suðureyri, íþróttamiðstöðina og leikskólann Tjarnarbæ. 

Tillaga um að bæta umferðaröryggi við skólann barst meðal annars frá hverfisráðinu á Suðureyri,  en hraðakstur hefur verið um Túngötuna, að og frá skóla úr tveimur áttum. Einnig var talin þörf á að bæta öryggi vegna bílastæða við skólann, þar sem bílar fara inn í og bakka út úr stæðum á sama tíma og verið er að stöðva við skólann til að hleypa börnum út. Slysahætta aukist svo enn frekar þegar myrkur og snjór er á svæðinu.

Skólastjórar leik- og grunnskólanna á Suðureyri tóku vel í fyrirhugaðar aðgerðir.

Lögreglan á Vestfjörðum hefur tekið út svæðið og samþykkt fyrirhugaðar breytingar.

Tillaga bæjarráðs verður tekin til afgreiðslu í bæjarstjórn fimtudaginn 21. september.

DEILA