Erlendum ríkisborgurum fjölgar mikið

Alls voru 71.951 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. september sl. og fjölgaði þeim um 7.366 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 11,4%. Þetta kemur fram í tölum Þjóðskrár.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 53,3% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 3.473 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi, sem er fjölgun um 1.208 einstaklinga á tímabilinu.

Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Palestínu eða um 49,7% sem eru 154 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 464 einstaklingar með palenstínskt ríkisfang búsettir hér á landi.

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 2.007 einstaklinga eða um 8,6% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 25.303 samtals.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.488 einstaklinga eða um 0,5%.

DEILA