Skrímslasetrið á Bíldudal með lokakvöld

Skrímslasetrið kunngjörir lokakvöld föstudaginn 15. september 2023.

Margt er búið að bralla í sumar. Ráðstefna, myndlistasýning og tónleikar meðal annars.

En nú er komið að vetrarlokun og því við hæfi að bjóða öllum í lokapartý.

Hjalti, Viðar og Matti hafa sett saman hljómsveitina Skrímslin af þessu tilefni og aðeins eitt á boðstólnum. Að hafa gaman.

Kvöldopnun hefst kl 21. Einstakir dílar og frítt inn.

Skyldumæting með góða skapið.

DEILA