Geimskipið lendir í Seljalandsdal

Í byrjun júní samþykkti bæjarráð Ísafjarðarbæjar að taka á móti listaverkinu – Lendingarstaður fyrir geimskip – á Seljalandsdal sem gjöf, eftir uppsetningu þess.

Skipulags- og mannvirkjanefnd fékk málið til skoðunar og lagði til að heimila stofnun lóðar undir listaverkið „Lendingarstaður fyrir geimskip“ við Seljalandsdal.

Bæjarráðið tók málið fyrir að nýju í síðustu viku og samþykkti lóðarstofnunina.

Elísabet Gunnarsdóttir, arkitekt sendi inn erindið og gaf hún þá Bæjarins besta eftirfarandi upplýsingar um verkið og listamanninn:

Þýski listamaðurinn Björn Dahlem heimsótti Ísafjörður 2019 og skoðaði þá m.a. Skíðheima, gamla skíðaskálann á Seljalandsdal. Þar kviknaði sú hugmynd að reisa útilistaverk við bílastæðið framan við skálann þar sem útsýni er hvað best yfir Ísafjörð, Skutulsfjörðinn og Ísafjarðardjúp. Staðurinn er vinsæll áningarstaður ferðamanna og þá helst ferðamanna af skemmtiferðaskipum sem ekið er upp á Seljalandsdal í rútum. Verk Björns Dahlem er hluti af stærra verkefni þar sem hann reisir útilistaverk sem hann kallar lendingarstaði fyrir geimskip á völdum stöðum í mismunandi heimsálfum. Útilistaverkið á Seljalandsdal er að stórum hluta fjármagnað af Bauhaus skólanum í Weimar í Þýskalandi þar sem listamaðurinn kennir, en einnig hefur Uppbyggingarsjóður Vestfjarðar veitt vilyrði fyrir styrk til verkefnisins. Verkefnið er ekki fullfjármagnað en vonir standa til að hægt verði að koma því upp seinna í sumar.

Staðsetning lóðarinnar er við Skíðheima.

DEILA