Lyklaskipti í Blábankanum

Á dögunum fóru fram lyklaskipti í Blábankanum á Þingeyri þegar Gunnar Ólafsson tók formlega við sem Blábankastjóri af Birtu Bjargardóttur.

Af þessu tilefni var opið hús í Blábankanum og gestum boðið upp á kaffi og kræsingar.

Gunnar hefur tekið virkan þátt í þróun nýsköpunar en undanfarin ár hefur hann rekið Djúpið, samfélags- og nýsköpunarmiðstöð í Bolungarvík, auk þess að hafa komið á laggirnar fjölmörgum sprotaverkefnum.

Birta hefur verið Blábankastjóri frá 2021 en hverfur nú til annarra starfa.

DEILA