Stjórnarþingmaður: Gagnrýnir fyrirhugaða gjaldskrárhækkun Matvælastofnunar

Bjarni Jónsson, alþm.

Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi gagnrýnir áform um hækkun gjaldskrá Matvælastofnunar sem muni gera bænd­um og litl­um slát­ur­hús­um erfitt fyr­ir. Bændasamtök Íslands leggjast gegn hækkuninni og fara fram á það við Matvælaráðherra að tillögurnar verði dregnar til baka. Segir í umsögn þeirra að um sé að ræða grundvallarbreytingu á innheimtu eftirlitsgjalda sem felur í sér gríðarlegan kostnaðarauka fyrir atvinnugreinina.

Í færslu um málið á Facebook segir Bjarni Jónsson að

„Síðustu ár höfum við séð mikla grósku ífjölbreyttri heimavinnslu á mat Beint frá býli, tilkomu örsláturhúsa sem þjóna einstökum býlum eða nærsamfélaginu til frekari fullvinnslu á afurðum og virðisauka. Víða hefur þetta hleypt nýju lífi í byggðirnar og stuðlað að margvíslegri spennandi nýsköpun og tekjumöguleikum til sveita. Gríðarleg tækifæri felast í að styðja enn frekar við þessa þróun.

Matvælastofnun birtist sem nátttröll

Þessi nálgun Matvælastofnunar gengur þvert gegn þeim markmiðum og getur hreinlega brotið niður margra ára frumkvöðla og uppbyggingarstarf víða um land. Hér birtist Mast, ekki í fyrsta skipti þegar heimavinnsla á mat er annarsvegar, sem algjört nátttröll. Hér er verið að bregða fæti fyrir það góða starf sem víða er verið að vinna og stofnunin ætti þess í stað að vinna með og aðstoða eins og hlutverk slíkrar stofnunar á að vera. Hér þarf að grípa í taumana og rétta stofnunina af.“

 

DEILA