Í haust mun Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samvinnu við Leiðsöguskólann í Kópavogi, bjóða upp á nám í svæðisleiðsögn fyrir Vestfirði. Námið hefst í október og spannar alls þrjár annir, en einnig er mögulegt að taka staka áfanga hafi fólk t.d. áður lokið hluta af náminu eða ef starfandi leiðsögumenn vilja taka það sem endurmenntun.
Ferðaþjónusta á Vestfjörðum er í örum vexti og tækifærunum til að hasla sér völl í greininni fer stöðugt fjölgandi. Svæðisleiðsögunámið er gott veganesti fyrir alla sem þar vilja starfa og er alls ekki bundið eingöngu við leiðsögufólk. Námið nýtist nefnilega öllum sem á einhvern hátt koma að þjónustu og aðstoð við ferðamenn. Það veitir þátttakendum tækifæri til kynnast sögu, náttúru og mannlífi Vestfjarða betur og um leið að auka færni sína og hæfni til að standast vaxandi kröfur um færni og fagmennsku í ferðaþjónustu.
Nám í svæðisleiðsögn er víðfeðmt, fjölbreytt og umfram allt skemmtilegt. Fjallað er um jarðfræði, sögu og menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi, samfélag, bókmenntir og listir. Nemendur eru fræddir um áhugaverða staði á Vestfjörðum, náttúruvernd, umhverfismál og leiðsögutækni. Fyrirlesarar og kennarar eru allir sérfróðir um einstaka málaflokka.
Námið er 22 einingar og skiptist niður á þrjár annir, haustönn 2023 og vorönn og haustönn 2024. Um er að ræða fjarnám og staðnám í helgarlotum. Gert er ráð fyrir 4-5 staðlotum á tímabilinu, víðsvegar um Vestfirði auk prófalotu í lokin. Námið fer fram á íslensku fyrir utan að nemendur geta valið að fá þjálfun í leiðsögn á ensku (eða öðru tungumál ef næg þátttaka fæst).
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 21 árs við upphaf námsins, hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegt námi, ásamt því að hafa gott vald íslensku og einu erlendu tungumáli.
Svæðisleiðsögunámið kostar 365.000 kr. og er mögulegt að skipta greiðslum á annir. Þátttakendur eru hvattir til að kanna styrki hjá stéttarfélögum. Kostnaður vegna vettvangsferða í staðlotum er innifalinn í verði en nemendur greiða sjálfir ferðir, gistingu og mat.
Viðtökur við svæðisleiðsögunáminu eru góðar en þó eru enn nokkur sæti laus í hópnum. Þau sem eru áhugasöm eru því hvött til að skrá sig sem fyrst.
Umsjón með náminu hefur Sólveig Bessa Magnúsdóttir verkefnastjóri hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða og svæðisleiðsögumaður en hún veitir einnig frekari upplýsingar. Nánar um námið hér á vef miðstöðvarinnar.