Bakkaskjól: birta ekki tilboðin

Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Ísafjarðarbær birtir ekki upplýsingar um þau 10 tilboð sem bárust í Bakkaskjól í Hnífsdal, aðeins um það sem tekið var, frá Áslaugu Jóhönnu Jensdóttur og Magnúsi Helga Alfreðssyni f.h. Trésmiðsins ehf. að upphæð 15.500.000.

Í svari Ísafjarðarbæjar við fyrirspurn Bæjarins besta, sem óskaði eftir nöfnum tilboðsgjafa og tilboðsfjárhæðum segir að gögnin séu „um fjárhagsmálefni einstaklinga sem skulu fara leynt sbr. 9. gr. upplýsingalaga um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna.“

Beðið er svara frá Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarstjóra um það hvort könnuð hafi verið afstaða Hnífsdælinga til þess að selja Bakkaskjól til byggingarverktaka og færa byggingarstarfsemi inn í íbúðabyggð.

DEILA