Bakkaskjól: kurr í Hnífsdal

Bakkaskjól. Mynd: Ísafjarðarbær.

Mikill kurr er í Hnífsdælingum samkvæmt heimildum Bæjarins besta vegna ákvörðunar bæjarráðs Ísafjarðarbæjar um að selja Bakkaskjól, leikskólahúsið í Hnífsdal , til byggingarverktaka, sem mun ætla sér að hafa þarna smíðaverkstæði og alls konar byggingarefni. Gangi það eftir er verið að setja iðnaðarstarfsemi inn í miðju íbúarbyggð og þar sem verður áfram leiksvæði krakkana. Ekki mun hafa farið fram grenndarkynning á meðal íbúa í Hnífsdal um breytta notkun eins og skylt er samkvæmt lögum.

Mun vera í undirbúningi að leita til umboðsmanns Alþingis verði ekki gerð bragarbót á meðferð málsins.

DEILA