Rúmlega 70 þúsund erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi

Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár voru 71.250 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. ágúst sl. og hafði þeim fjölgaði um 6.665 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 10,3%.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.444 einstaklinga eða um 0,4%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 50,9% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 3.419 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 1.154 einstaklinga á tímabilinu.

Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Palestínu eða um 43,2% sem eru 134 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 444 einstaklingar með palenstínskt ríkisfang búsettir hér á landi.

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 1.869 einstaklinga eða um 8% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 25.165 samtals.

Einnig er áhugavert að skoða hlutfallslega fjölgun frá 1. desember 2022 til 1. ágúst, þar ber að nefna hlutfallslega fjölgun frá Belarús, 46,7% sem er fjölgun um 14 einstaklinga.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.444 einstaklinga eða um 0,4%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. ágúst 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

DEILA