Þyrlur Landhelgisgæslunnar gerðar út frá Akureyri og Reykjavík.

Helgin var annasöm hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sem sinnti sjö útköllum á föstudeg og laugardag.


Á tíunda tímanum í laugardagskvöld var áhöfnin á TF-GNA kölluð út vegna mótorhjólaslyss norður af Vatnajökli. Þyrlan kom á staðinn um klukkan hálf ellefu og flutti þann slasaða á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Klukkan 00:30 barst tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Ólafsfjarðarvegi við Kambhól og var þyrlan þegar í stað kölluð út frá Akureyri að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Einn var fluttur slasaður á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Á sama tíma var óskað eftir þyrlu til að flytja einn slasaðan úr Flatey vegna falls og var áhöfnin sem var í Reykjavík kölluð út ásamt sjúkraflutningamanni frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið gerðar út frá Akureyri og Reykjavík um helgina. Á föstudag annaðist þyrlusveitin fjögur útköll og því eru útköll helgarinnar alls sjö talsins.

Image00001_1692011507015

Þyrlusveitin í útkalli um helgina. 

Image00005_1692011507027

TF-GNA á flugi.

DEILA