Dagskrá verslunarmannahelgarinnar í Dalbæ á Snæfjallaströnd fór fram í frábæru veðri, sól, Djúplogni og hátt í 20 stiga hita. Monika Abendroth lék á hörpu á veröndinni. Berta Dröfn Ómarsdóttir og Svanur Vilbergsson fluttu perlur eftir Kaldalóns og fleiri, Arnljótur Sigurðsson, Kraftgalli, flutti frumsamið efni ásamt Svölu Louise Leaman. Loks kom Gísli Jens Guðmundsson á svið og kom fólki í gírinn fyrir hlöðupartý á Lyngholti um kvöldið.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2023/08/Dalbaer_monika-1024x768.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2023/08/Dalbaer_23_a-1024x768.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2023/08/Dalbaer_b_23-1024x768.jpg)