Nær 3 milljörðum króna veitt til innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum

Brú í byggingu yfir Staðará á Hornströndum

Um 908 milljónum króna verður úthlutað úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða á þessu ári samkvæmt úthlutun fjármuna til uppbyggingar innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum sem samþykkt hefur verið af Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Gert er ráð fyrir um 2,7 milljarða króna framlagi til næstu þriggja ára.

Úthlutanir ársins munu gera kleift að halda áfram því mikilvæga verkefni að byggja upp efnislega innviði á ferðamannastöðum, s.s. göngustíga, útsýnispalla, bílastæði og salerni. Aukin áhersla er á langtímaáætlanir í uppbyggingu staða, en einnig á aukna miðlun og merkingar, ekki síst á stöðum þar sem samspil er á milli náttúru og menningarsögulegra minja.

Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum er stefnumarkandi áætlun sem Alþingi samþykkti árið 2018. Verkefnaáætlanir eru gerðar til þriggja ára og eru uppfærðar á hverju ári. Ný verkefnaáætlun sem ráðherra hefur nú kynnt nær til áranna 2023-2025.

Alls eru nú 127 verkefni á áætlun næstu þriggja ára á rúmlega 82 ferðamannastöðum, þar af eru 56 ný verkefni sem bætast við að þessu sinni. Þar má nefna gerð hringleiðar um Stöng og Gjána í Þórsárdal, undirbúning að endurnýjun brúar yfir Öxará á Þingvöllum og uppbyggingu stígakerfis í Þingvallahrauni, uppbyggingu göngustígs og vatnssalerna í Vatnsfirði, gerð útsýnispalla, áningarbekkja og þurrsalerna í norðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs, áframhald uppbyggingar innviða fyrir ferðamenn í Ólafsdal í Gilsfirði, hönnun og framkvæmdir við ferðamannastaðinn Hvítserk, göngustíga við Jökulsárlón og stækkun bílastæðis við Keldur á Rangárvöllum.

Áfram verður haldið með uppbyggingu á Gullfossi með það að markmiði að koma til móts við ólíka hópa ferðamanna. Þá er stefnt að því að ljúka uppbyggingu á Geysissvæðinu á gildistíma áætlunarinnar í samræmi við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir svæðið.

DEILA