Hámeri

Hámeri, Lamna nasus, hefur lengi verið veidd í Norður-Atlantshafi og Miðjarðarhafi af ýmsum þjóðum, þeirra á meðal Norðmönnum, Dönum, Færeyingum, Bretum, Frökkum og Spánverjum.

Einnig hafa Japanir veitt hámeri í sunnanverðu Indlandshafi.

Hámeri er mest veidd á flotlínu en einnig í flot- og botnvörpur, á handfæri og í net.Hámeraveiðar hafa lítið verið stundaðar á Íslandsmiðum.

Þó fóru þær fram frá Tálknafirði og Patreksfirði á árunum 1959-1962 á 2,5-4 tonna trillum. Veitt var á línu og var veiðisvæðið undan Látrabjargi, Blakk og Kóp á tímabilinu frá því í lok ágúst til loka október.

Í Evrópu eru veidd að minnsta kosti 2 þúsund tonn af hámeri árlega.

Það er talin vera ofveiði en hámeri mun vera ofveidd alls staðar þar sem veiðar eru stundaðar.

Af visindavefur.is

DEILA