Framkvæmdir við Félagsheimilið á Suðureyri

Fyrirhugað er að fara í framkvæmdir við Félagsheimilið á Suðureyri.

Rífa á gömlu baðklefana og gera í staðinn nýja viðbyggingu fyrir klósett og stóla- og borðageymslu ásamt útisvæði í portinu. Þetta er að sjálfsögðu framkvæmd sem mun kosta töluverða fjármuni.

Til að starta fjáröflun hefur verið ákveðið að halda dansleik þar sem allur ágóði rennur til fyrirhugaðra framkvæmda.

Heimafólkið í Celebs, sem hefur stigið á stokk í Félagsheimilinu frá því þau voru á leikskólaaldri, munu í félagi við gömlu mennina í Stuðbandi Benna Sig. gera brjálað stuð á gólfinu í gamla góða félagsheimilinu.

Nú er um að gera að mæta og taka snúning á parketinu og opna veskið duglega á barnum þar sem allur ágóði rennur til þessa frábæra málefnis.

Húsið opnar kl. 23.00 sem er rétt á eftir lokum Act Alone hátíðarinnar.

DEILA