Breytingar hjá Lýðskólanum á Flateyri

Í sumar hafa orðið breytingar í stjórnendateymi Lýðskólans. Katrín María Gísladóttir, sem gegnt hefur starfi skólastjóra síðustu tvö ár, hefur látið af störfum og við skólastjórastöðunni tekur Sigríður Júlía Brynleifsdóttir sem áður gegndi stöðu kennslustjóra. Að auki fer Sigríður Júlía samhliða með framkvæmdastjórn nemendagarða Lýðskólans og Skúrinnar samfélagsmiðstöðvar. Við stöðu kennslustjóra tekur Erla Margrét Gunnarsdóttir. Erla er með meistaragráðu í skipulagsfræðum frá Frankfurt og BS gráðu í byggingartæknifræði frá HR. Hún hefur áður unnið að verkefnastjórn í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og kennslu við Landbúnaðarháskólann ásamt því að vinna að kvikmyndagerð og leiðsögn. Hún er núna vagnstjóri á Vagninum á Flateyri og þekkir skólann og þorpið vel, enda dvalist á Flateyri undanfarin sumur. Erla Margrét var framkvæmdastjóri Steinsteypufélags Íslands.

Auk Sigríðar Júlíu og Erlu Margrétar er Margeir Haraldsson verkefnisstjóri í hópi fastra starfsmanna við Lýðskólann.

Í tilkynningu frá Lýðskólanum er Katrínu Maríu þakkað fyrir gott og gefandi samstarf, Sigríði Júlíu óskað til hamingju með nýja stöðu og Erla Margrét boðin hjartanlega velkomin til starfa í haust.

DEILA