Vesturbyggð: ágangsfé ekki smalað

Frá Vatnsfirði.

Bæjarráð Vesturbyggðar tók fyrir 18. júlí erindi frá íbúa í Vatnsfirði dags 6.7. sem fer fram á að sveitarfélagið smali ágangsfé. Segir í erindinu að hann sé búinn“að vakna hverja nótt í tvær vikur vegna þess að ágángs fé hangir við húsin hjá okkur allar nætur og heldur fyrir okkur vöku og eyðileggur andvarpið hjá okkur“

Bæjarráðið frestaði afgreiðslu beiðnarinnar um smölun ágangsfjár og fól bæjarstjóra að vinna áfram að málinu ásamt því að leita leiðbeininga sem skýra réttaróvissu.

Í bókun bæjarráðs segir að mikil réttaróvissa sé í tengslum við túlkun laga nr. 38/2013 um búfjárhald og laga nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl., er varðar skilgreiningar og leiðbeiningar á mikilvægum atriðum, s.s. réttarstöðu aðila, hvað teljist verulegur ágangur búfjár, hvernig kostnaðarskipting skuli vera, hvernig standa skuli að smölun ágangsfjár, hverjir eru aðilar máls samkvæmt stjórnsýslulögum, hvort land þurfi að vera afgirt, tíðni smölunar og fleiri veigamiklum atriðum.

„Bæjarráð telur því rétt að fresta afgreiðslu beiðna um smölun ágangsfjár þar til leiðbeinandi álit verður gefið út, endurskoðun á lögum um afréttarmálefni er lokið eða verklagsreglur liggja fyrir um hvort og hvernig skuli tekið á beiðnum um smölun ágangsfjár. Bæjarráð telur mikilvægt er að viðhafa vandaða stjórnsýslu þegar um íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir er að ræða og telur að ekki sé rétt að sé grípa til ráðstafana á lagagrunni þar sem ágreiningur liggur fyrir um túlkun.“

DEILA