KJÖTSÚPUHÁTÍÐIN Á HESTEYRI Á MORGUN

Þá er komið að hinni árlegu og sívinsælu Kjötsúpuhátíð á Hesteyri. Hátíðin fer fram á morgun laugardaginn 5. ágúst frá kl. 15:00 – 23:00.

Það eru Hrólfur Vagnsson vert í Gamla Læknishúsinu sem matreiðir Kjötsúpuna eftir uppskrift ættmóðurinnar Birnu Hjaltalín Pálsdóttur.

Eftir súpuna er boðið upp á kaffi og nýbakaðar pönnukökur með sykri og svo verður hin skemmtilegasta dagskrá sem Birna Hjaltalín Pálmadóttir stýrir. Þar verða leikir, söngur, fíflagangur og almennt glens og gaman uns gengið er í fjöru þar sem tendraður verður varðeldur og sungið fyrir hafið.
Siglt verður frá Bolungavík til Hesteyrar með Hauki Vagnssyni á Hesteyri ÍS 95. Siglingin tekur aðeins um klukkustund.


Hægt verður að velja á milli tveggja brottfarartíma kl 14, og kl 16. Farið verður til baka kl 21 og kl 23. Athugið, sætafjöldi er takmarkaður. Bókið á eftirfarandi vefsíðu https://hornstrandaferdir.is/kjotsupuhatidin/

DEILA