Árneshreppur: tónleikar og mýrarbolti um helgina

Frá mýrarbolta í Árnesi í Trékyllisvík.

Það hefur verið mikið um ferðamenn í sumar í Árneshreppi og um helgina verður margt um að vera.

Þá verður um verslunarmannahelgina hápunktur sumarsins. Á föstudagskvöldið eru Melasystur með stórtónleika í fjárhúsunum hjá foreldrum sínum á Melum. Systurnar eru Þorgerður Lilja, Ellen Björg og Árný Björk og hafa sýnt góða sönghæfileika.

Á laugardaginm verður mýrarbolti í túninu á  Melum. Þar hafa á undanförunum árum að jafnaði keppt 12 – 18 lið og veðurútlitið er gott að þessu sinni.

Um kvöldið verður sveitaball í félagsheimilinu í Árnesi þar sem Blek og Byttur spila fyrir dansi.

Á sunnudaginn er stefnt að því að verði óvæntar uppákomur í Árneskirkju með landsþekktum listamönnum, en ekki hefur verið gefið upp hverjir komi fram í ár.

Sunnudagskvöldið verður varðeldur og söngur í fjörunni í Norðurfirði.

Ferðaþjónustan Urðartindur er með stórt tjaldstæði með öllum þægindum.

DEILA