Um 40 sjálfboðaliðar tóku þátt í að telja seli á Vatnsnesi og Heggstaðanesi í sunnudag þegar fram fór selatalning.
Á 110 kílómetra langri strandlínu voru 549 selir taldir og er það 46 selum færra en í fyrra þegar þeir voru 595 talsins.
Á upplýsingasíðu Selasetursins segir að ekki sé hægt að draga stórar ályktanir af þessari fækkun og er bent á að árin 2012 og 2015 hafi 400-450 selir verið taldir.
„Vissulega hefðu það verið jákvæðar fréttir ef þessi tala hefði verið hærri. Við bindum því vonir við að hún verði hærri að ári í ljósi þess að staða selastofna landsins er viðkvæm,“ segir á síðunni.
Selatalningin er á vegum Selaseturs Íslands á Hvammstanga.