Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingabringum frá Esju Gæðafæði vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Innköllunin á eingöngu við framleiðslulotu 23205.
- Vörumerki: Kjötsel
- Vöruheiti: Kjúklingabringur grilltvenna úrb marineruð
- Framleiðandi: Esja Gæðafæði Bitruhálsi 2 110 Reykjavík
- Lota: 23205
- Strikamerki: 2395041
- Geymsluskilyrði: Kælivara
- Geymsluþol:
- Dreifing: Nettó verslanir
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað vörunni í viðkomandi verslanir eða til Esju Gæðafæðis, Bitruhálsi 2, 110 Reykjavík. Esja Gæðafæði biður neytendur velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu getur skapast.
Salmonella er hópur þarmasýkla og er hún sjálfstæð ættkvísl. Salmonella er í raun bara ein tegund sem kallast Salmonella enterica, en í dag er litið svo á að tegundinni tilheyri 7 undirtegundir og 2200 sermigerðir. Allar sermigerðirnar geta valdið sjúkdómum hjá mönnum en algengustu afbrigðin sem valda sýkingum eru S. Typhimurium og S. Enteritidis