Margar góðar sundlaugar eru á Vestfjörðum.
Ein þeirra er sundlaugin á Patreksfirði sem er við Íþróttamiðstöðina Bröttuhlíð.
Þar er 16,7 metra löng útilaug, tveir heitir pottar, vaðlaug og sauna.
Þar er fín sólbaðsaðstaða og útsýnið yfir Patreksfjörðinn er mjög flott. Í íþróttamiðstöðinni er svo þreksalur og íþróttahús.