Föstudaginn 28. júlí kl. 16 verður opnuð sýning á verkum Romain Causel í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið The Wandering of a Bricoleur og stendur til sunnudagsins 20. ágúst. Listamaðurinn hefur dvalið undanfarnar vikur í gestavinnustofum ArtsIceland á Ísafirði og verður viðstaddur opnun sýningarinnar.
Romain Causel er þverfaglegur listamaður með aðsetur í Marseille í Suður-Frakklandi. Hann útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Fagurfræði hans er spunaferli, lítilvirk og þróast með tímanum. Hann sækir innblástur og efni í hluti sem hefur verið fleygt, yfirgefin rými og fáránleikann í samtíma okkar. Hann skapar oft staðbundnar innsetningar sem endurspegla umhverfið. Með húmor og ómótaðri frásögn sinni tekur hann á málefnum er varða umhverfið og stjórnmálin.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2023/07/thumbnail_Keep-trying-1024x576.jpg)
„Nú, það sem einkennir goðsagnakennda hugsun er að hún tjáir sig með hjálp gagnasafns þar sem samsetningin er misleit og þrátt fyrir að vera umfangsmikil, er samt sem áður takmörkuð; engu að síður verður hún að notast við þetta, sama hvert viðfangsefnið er, því hún hefur ekkert annað við höndina.“ – Claude Lévi-Strauss, The Savage Mind (1962)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2023/07/thumbnail_Stand-Still-1024x576.jpg)
„The Wandering of a Bricoleur“ snýst um persónuna ,,The Bricoleur“ sem listamaðurinn skapaði sem nokkurs konar ýkta útgáfu af sjálfum sér. Hugtakið „bricoleur“ hefur margar merkingar á frönsku, allt frá handverksmanni til reddara, og getur jafnvel þýtt bragðarefur. Í öllu falli er merkingin sú að ná árangri með útsjónarsemi, háð aðstæðum. Á sýningunni í Úthverfu eru vídeó, skúlptúrar og hlutir sem rannsaka heim þessarar persónu án þess að neinn augljós söguþráður sé til staðar. Allt snýst um hina forvitnilegu spurningu: „Hver er eðlileg notkun?“ Þér er boðið að ganga inn í heim fáránleika og raða saman hlutunum.