Wilson til Álasunds í niðurrif

Wilson Skaw við Hólmavíkurhöfn. Mynd: aðsend.

Þann 18. apríl síðastliðinn strandaði flutningaskipið Wilson Skaw út af Ennishöfða á leið sinni frá Hvammstanga til Hólmavíkur.

Hefur það nú verið dregið til Álasunds í Noregi til niðurrifs.

Skipið sat fast á um 50 m kafla og var óttast að erfitt gæti reynst að ná skipinu á floti en áhöfnin var ekki í hættu. Varðskipið Freyja kom fljótlega að og þremur dögum eftir strandið sáu náttúruöflin til þess að skipið losnaði og dró Freyja það til skoðunar inn á Steingrímsfjörð. Síðar var það síðan dregið til Akureyrar þar sem til stóð að það færi í slipp.

Á mbl.is í gær var síðan sagt frá því að Wilson fór aldrei í slipp því eftir ýtarlega skoðun var það mat manna að ekki borgaði sig að gera við skipið

DEILA