Oddi kaupir Örvar

Oddi hf Patreksfirði hefur náð samkomulagi við Hraðfrystihús Hellisands um kaup á línuskipinu Örvari SH 777

Skipið mun leysa Núp BA 69 frá og með næstu áramótum sem gerður hefur verið út á línu frá Odda síðan 1990.

Núpur sem smíðaður var árið 1976 í Póllandi og er 237 rúmlestir að stærð, hefur þjónað Odda vel og verið mikið aflaskip.

Örvar er um 4,5 metrum lengri og 1.5 metrum breiðari og er 410 rúmlestir. Örvar var smíðaður i Noregi í skipasmíðastöðinni Solstrand Slip & Baatbyggeri árið 1992. Skipið er mjög vel útbúið fyrir meðferð á hráefni og allur aðbúnaður er mjög góður fyrir áhöfnina.

Oddi hf hefur fyrst og fremst gert út á línu síðustu áratugi og byggt upp öflug viðskipti með línuveitt hráefni fyrir kröfuhörðustu markaðina og með kaupunum á Örvari hefur stefna félagsins verið mörkuð á sömu braut.

DEILA