Grásleppuvertíðin framlengd til 31 ágúst

Í Stjórnartíðindum hefur verið birt breyting á reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2023.

Með henni verður heimilt að stunda veiðar í innanverðum Breiðafirði til og með 31. ágúst. 

Áður hafa verið gerðar þrjár breytingar á upphaflegri reglugerð.  Dögum var fjölgað úr 25 í 35 og síðar í 45.  

Jafnframt var veiðitímabil lengt.  Í stað þess að lokadagur væri 30. júní var ákveðið að hann verði 12. ágúst á öllum svæðum.    

Alls hafa grásleppubátar nú veitt 3.610 tonn, en á sama tíma í fyrra var veiðin 4.121 tonn.  Landssamband smábátaeigenda áætlar að verð hafi hækkað um 40% frá í fyrra.   

Þrátt fyrir að vertíðin hafi verið lengd er ólíklegt að takist að veiða leyfilegt magn 4.411 tonn. 

DEILA