Lítið er eftir af þorskkvóta fiskveiðiársins 2022/2023 eða rúmlega 11 þúsund tonn af þeim 168 þúsund tonnum sem úthlutað var.
Það eru því ekki eingöngu strandveiðisjómenn sem þurfa að stöðva veiðar. Margir bátar eru þegar bundnir við bryggju og þeim mun fjölga á næstu dögum, en nýtt fiskveiðiár hefst svo 1. september
Verð á fiskmörkuðum hefur hækkað eftir að strandveiðum lauk og var verð á fiskmörkuðum nú rúmlega 540 krónur fyrir kíló af óslægðum þorski samkvæmt tölum Reiknistofu fiskmarkaða.
Það er um 20% hærra verð en fékkst að meðaltali það sem af er júlímánuð og um 30% hærra verð en meðalverð í maí og júní.
Meðalverð það sem af er júlí er um 450 kr krónur á kíló en var um 416 krónur í maí og júní.