Reykjavíkurflugvöllur áfram mikilvægur

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi.

Á fundi borgarráðs Reykjavíkur á fimmtudaginn fór fram umræða um eldgos á Reykjanesskaga. Í lok þeirrar umræðu lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram bókun þar sem segir að eldgosin á Reykjanesskaga sýni að hugmyndir um nýjan flugvöll í Hvassanesi séu óraunhæfar. Kjartan Maganússon borgarfulltrúi segir að Reykjavíkurflugvöllur muni áfram gegna mikilvægu hlutverki í innanlandsflugi, sjúkraflugi og björgunarflugi og hann vill ekki að frekar verði þrengt að vellinum en þegar er orðið.

Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins

„Þriðja eldgosið á Reykjanesskaga á jafnmörgum árum sýnir að nýtt gostímabil er hafið á svæðinu, sem gæti staðið öldum saman. Jarðfræðingar benda á að það mynstur virðist vera að skapast að gosvirknin færist í norðaustur frá Fagradalsfjalli og þar með nær höfuðborgarsvæðinu. Þessi þróun sýnir að hugmyndir um lagningu nýs alþjóðaflugvallar í Hvassahrauni eru óraunhæfar vegna jarðhræringa og eldgosahættu eins og jarðvísindamenn og atvinnuflugmenn hafa bent á árum saman.

Reykjavíkurflugvöllur mun því áfram gegna mikilvægu hlutverki í innanlandsflugi, sjúkraflugi og björgunarflugi og brýnt að ekki verði þrengt að vellinum frekar en orðið er eins og til stendur að gera með nýrri byggð í Skerjafirði. Sjúkraflugið hefur aukist mikið á síðustu árum og er nú almennt viðurkennt sem mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þá gegnir Reykjavíkurflugvöllur mikilvægu hlutverki í millilandaflugi sem varaflugvöllur Keflavíkurflugvallar.“

DEILA