Harmonikkuball verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði sunnudaginn 9. júlí kl. 15 til 17.
Nú er um að gera að fá sér snúning segir í tilkynningu um ballið. Baldur Geirmunds spilar fyrir dansi og spiluð verða gömlu góðu stuðlögin.
Kaffiveitingar og frítt inn.
Það eru Rauði krossinn og Menningarmiðstöðin Edinborg sem standa fyrir ballinu.