Vegagerðin hefur ákveðið að bjóða út að nýju í haust smíði tveggja brúa og vegagerð beggja vegna við Klettsháls.
Um er að ræða smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 m plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 km.
Tilboðsfrestur rann út 20. júní en engin boð bárust.