Úthlutun Lóunnar – styrkja til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni 2023

Í ár hljóta 25 verkefni styrk úr Lóunni, nýsköpunarstyrk fyrir landsbyggðina. 

Hlutverk Lóunnar er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni á forsendum svæðanna sjálfra. Í ár var sérstaklega horft til verkefna sem komin eru af byrjunarstigi og tengjast samfélagslegum áskorunum á borð við loftslagsmál, sjálfbærni í heilbrigðis- og menntamálum og sjálfbærni í matvælaframleiðslu.

Heildarfjárhæð úr Lóu 2023 er 100 milljónir króna. 

Alls bárust alls 97 umsóknir og voru þær á fjölbreyttum sviðum og viðfangsefni þeirra ólík, allt frá hugmyndum á frumstigi til stærri verkefna sem komin eru vel á veg.

Tvö verkefni á Vestfjörðum fengu styrk en það voru Ískalk sem fékk 2.500.000 í verkefnið Áburðurðarframleiðsla í héraði . Verkefnið gengur út á að nota kalkþörungamjöl og meltu frá laxeldi til að blanda við kúamykju til þess að framleiða hágæða áburð á tún og lækka þannig kostnað bænda og minnka umhverfisáhrif.

Hitt fyrirtækið var Sjótækni sem fékk 4.000.000 í verkefnið Bætt velferð laxa í sjókvíum. Tilgangur verkefnisins er að þróa aðferðir til að draga úr ásókn lúsar við sjókvíaeldi, auka þar með dýravelferð ásamt að bæta arðsemi og sjálfbærni fiskeldis. Aðferðin líkir eftir náttúrulegu atferli laxa til að hreinsa sig af laxalús (ferskvatn, hitabreytingar, straumur) og að einhverju leyti einnig með notkun á sérstökum hreinsiefnum

DEILA