Tæpum 1,1 milljarði kr. úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra – Ekkert til Vestfjarða

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað tæpum 1,1 milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Alls voru veittir styrkir til 57 verkefna til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á hjúkrunarheimilum um allt land, auk nýframkvæmdar við byggingu þjónustumiðstöðvar í Grindavík.

Athygli vekur að ekki var úthlutað til framkvæmda á Vestfjörðum

Hæsta framlagið að þessu sinni, tæpar 112 milljónir króna, fer til Grindavíkurbæjar til byggingar þjónustumiðstöðvar með félagsaðstöðu fyrir aldraða. Við mat á umsóknum og forgangsröðun úthlutana lagði stjórnin sérstaka áherslu á verkefni sem miða að bættum aðbúnaði íbúa, s.s. breytingu fjölbýla í einbýli, endurbótum á hreinlætisaðstöðu, aðgengismál og endurbætur á öryggiskerfum.

Einnig var áhersla lögð á brýn viðhaldsverkefni, bættan aðbúnað í sameiginlegum rýmum íbúa og endurbætur á starfsmannarýmum.

DEILA