Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, verður að venju haldin hátíðardagskrá á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, Hrafnseyri við Arnarfjörð. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði og hefst á guðsþjónustu kl. 13:00 í kapellunni þar sem séra Hildur Inga Rúnarsdóttir þjónar og kór Þingeyrarkirkju syngur undir stjórn Jónsgunnars Biering Margeirssonar.
Þjóðhátíð verður svo sett kl. 14:15 og í kjölfarið flytur Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, hátíðarræðu. Einnig mun söngkonan og lagahöfundurinn Kristín Sesselja flytja tónlist og myndlistarsýning sumarsins með verkum eftir Kristján Stein Kristjánsson verður opnuð. Kl. 15:00 hefst svo Háskólahátíð Háskólaseturs Vestfjarða þar sem útskrift vestfirskra háskólanema er fagnað.
Nánari upplýsingar um dagskrá.
Hátíðardagskrá á Hrafnseyri 17. júní 2023
13:00 – 13:45 Hátíðarguðþjónusta: Séra Hildur Inga Rúnarsdóttir prestur á Þingeyri predikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór þingeyrarkirkju syngur undir stjórn Jóngunnars Biering Margeirssonar, sem einnig sér um undirspil.
14:15 Setning þjóðhátíðar.
Hátíðarræða: Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.
15:00 Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda.
Tónlist: Kristín Sesselja, söngkona og lagahöfundur flytur tónlist.
Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.
Opnun myndlistarsýningar sumarsins í burstabænum með verkum eftir myndlistarmanninn Kristján Stein Kristjánsson.
Kaffiveitingar í boði Hrafnseyrar í burstabænum á meðan hátíðarhöldunum stendur fram til kl. 17:00.
Einnig verður hægt að kaupa súpu og brauð
Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.
Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30.
Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 17:00.
Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútuna.