Póstboxum fjölgar á Vestfjörðum

Nýjum póstboxum hefur verið komið fyrir á sex stöðum á Vestfjörðum að undanförnu eða Bolungarvík, Flateyri, Þingeyri, Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.

„Við höfum unnið hörðum höndum að því að finna stað fyrir öll nýju póstboxin okkar. Um leið og við finnum heppilega staðsetningu er strax hafist handa við að setja póstboxin upp og við sendum uppsetningarteymið okkar af stað. Við höfum komið upp sex póstboxum á Vestfjörðum síðastliðnar vikur,“ segir Kjartan Flosason, forstöðumaður Pósthúsa hjá Póstinum.

Hægt er að senda pakka með póstboxum

„Póstboxin eru opin allan sólarhringinn alla daga ársins nema þar sem þau eru innandyra. Það á t.d. við um Patreksfjörð og Bíldudal. Þau eru í anddyri sundlaugarinnar á báðum stöðum þar sem opnunartími er lengri en á hefðbundnum pósthúsum. Einnig er hægt að senda pakka með því að nota póstboxin okkar. Það er gert í örfáum skrefum. Þú skráir pakkann á posturinn.is og færð strikamerki, skutlast í næsta póstbox þar sem þú prentar út miða og límir á pakkann og stingur svo pakkanum inn í hólfið. Við sjáum svo um rest.“

Kjartan hvetur alla til þess að prófa að nota póstboxin til að sækja pakka og senda. ,,Það hefur sýnt sig að það var mikil þörf á þessari þjónustu en það eru einmitt þeir viðskiptavinir Póstsins sem nota póstbox sem eru hvað ánægðastir,“ segir hann.

DEILA