Hólmavík: 20 manns missa vinnuna

Hólmadrangur. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Rækjuvinnsla Hólmadrangs á Hólmavík verður stöðvuð um næstu mánaðamót og starfsfólki verður þá að óbreyttu sagt upp störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja fyrr í dag.

205 milljóna króna tap á síðasta ári og eigið fé neikvætt

Í tilkynningunni kemur fram að viðvarandi taprekstur hefur verið á síðustu árum. Tap síðasta árs var 205 milljónir króna samkvæmt ársreikningi.

Eigið fé var neikvætt um 360 milljónir króna í árslok 2022 og eiginfjárhlutfall neikvætt um 28%. Helstu eignir Hólmadrangs felast í húsnæði, búnaði og birgðum.

Í upphafi var lagt upp með að kaupa hráefni frá Noregi, Kanada, Rússlandi og fleiri löndum en engar veiðiheimildir eru í félaginu.

Allt hráefni innflutt

Allt hráefni sem unnið er í rækjuvinnslu Hólmadrangs er innflutt, aðallega frá norður Noregi og Kanada. Framleiðsla félagsins á síðasta ári var um 1.400 tonn af afurðum.

Staðsetning vinnslunnar er á margan hátt óhagstæð segir í tilkynningunni, flutningskostnaður mikill á hráefni til vinnslunnar. Tilfinnanlegur skortur er á frystigeymslum á Hólmavík. Þetta hefur m.a. haft í för með sér að hluti hráefnisins hefur verið geymdur í öðrum landshluta með tilheyrandi óhagræði og kostnaði.

Framtíðarhorfur

Markaðsaðstæður á sölu kaldsjávarrækju hafa verið erfiðar frá upphafi heimsfaraldursins og ekki er talið að það breytist á næstu misserum.

Komið er að verulegri endurnýjun húsnæðis og búnaðar, eigi vinnslan að verða samkeppnishæf segir í tilkynningunni. „Samkvæmt mati sérhæfðs aðila er kostnaðurinn á nýjum búnaði ekki undir 500 milljónum króna. Við þessa fjárhæð bætist svo mikill kostnaður vegna endurnýjunar á húsnæði. Það er mat stjórnar Hólmadrangs að reksturinn standi ekki undir slíkri fjárfestingu. Annarra leiða hefur verið leitað til að tryggja áframhaldandi rekstur, meðal annars með aðkomu annarra aðila í rækjuiðnaðinum en án árangurs.“

Í niðurlagi tilkynningarinnar hvetur Hólmadrangur alla aðila er koma að atvinnumálum Strandabyggðar til að kanna gaumgæfilega möguleika á annarri starfsemi í húsnæði félagsins, og segist munu leggja til ráðgjafaþjónustu í tengslum við slíka vinnu. Sérhæfður aðili hefur verið ráðinn til verkefnisins, sem þekkir vel til atvinnumála Strandabyggðar.

Vísað er til nýlegrar viljayfirlýsingar sveitarstjórnar Strandabyggðar og fyrirtækisins Íslensk verðbréf (ÍV) um fiskeldi og þararækt. og segir að Hólmadrangur hafi þegar rætt við ÍV um hugsanlega aðkomu að þessu verkefni sem gæti opnað möguleika á nýjum atvinnutækifærum á staðnum með nýtingu þeirra fasteigna sem fyrir eru.

Að mati stjórnar Hólmadrangs liggja hugsanleg tækifæri fyrir svæðið ekki síður í mögulegri uppbyggingu ferðaþjónustu, sé litið til vaxandi fjölda ferðamanna og aðdráttarafls svæðisins fyrir ferðamenn.

DEILA