Laxeldi: Tillaga að rekstrarleyfi Arctic Sea Farm til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi

Kvíastæði Arctic Fish í Djúpinu.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Arctic Sea Farm ehf. til sjókvíaeldis í Ísafjarðardjúpi á 8.000 tonna hámarkslífmassa á regnbogasilungi og laxi, þar af má hámarkslífmassi af frjóum laxi að hámarki vera 5.200 tonn. Tillagan er byggð á matsskýrslu frá 2020 um 8.000 tonna laxeldi og/eða silungseldi í Ísafjarðardjúpi. Verði tillaga að 8.000 tonna rekstrarleyfi útgefið þá fellur um leið úr gildi rekstrarleyfi Arctic Sea Farm ehf. til 5.300 tonna sjókvíeldis á regnbogasilungi í Ísafjarðardjúpi (FE-1127).

Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi sem heimilar eldi í Ísafjarðardjúpi fyrir allt að 8.000 tonna hámarkslífmassa á regnbogasilungi og laxi, þar af má hámarkslífmassi af frjóum laxi að hámarki vera 5.200 tonn. Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar í Djúpinu gerir ráð fyrir 30.000 tonna hámarkslífmassa og áhættumat stofnunarinnar fyrir sama hafsvæði gerir ráð fyrir 12.000 tonnum af frjóum laxi.

Tillagan er birt á vef Matvælastofnunar og er hægt að gera athugasemdir við hana. Skulu þær vera skriflegar og sendar Matvælastofnun eigi síðar en 5. júlí 2023.

DEILA