Opnun fjallvega fer eftir veðurfari að vori eða í sumarbyrjun og ráða þar snjóalög mestu um opnunartíma. Bleyta í vegum getur einnig valdið því að vegir opnist seint.
Vegagerðin birtir að vori og fram á sumar kort sem sýnir hvar fjallvegir eru opnir. Kortið er uppfært jafnóðum og aðstæður breytast.
Á vefnum umferdin.is eru birtar upplýsingar um færð og ástand á vegum, þ.m.t. á fjallvegum.
Hálendiskortin birtast á vorin þegar byrjað er að opna eftir veturinn.
Einnig má finna á vef Vegagerðarinnar upplýsingabækling um áætlaða opnunardaga helstu fjallvega.