Bolafjall: teikningar af bílastæði

Útsýnispallurinn á Bolafjalli í ágúst 2022. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Bolungavíkurkaupstaður hefur skipulagt bílastæða upp á Bolafjalli og segir Finnbogi Bjarnason, tæknifræðingur að stefnt sé að því að byrja framkvæmdir og opna sem fyrst. „Búið er að hanna nýja lausn fyrir brotna glerið við endann og er sú lausn í smíði eins og er. Núna er verið að vinna merkingar fyrir svæðið í kerfi Vegrúnar frá ferðamálastofu og svo gjaldlausn fyrir bílastæðið með fyrirtækinu Parka.“

Afstöðumynd af bílastæðinu.
grunnmynd sem sýnir bílastæðin, þjónustubyggingu og stíg að útsýnispalli.

DEILA